KYNNINGARTÍMI · STYRKUR OG MÝKT - 22. okt
Komdu og prófaðu Styrk og Mýkt í sérstökum kynningartíma með Bjargey Aðalsteins.
50 mínútna tími þar sem Pilates, styrktaræfingar með lóðum og mýkt barre-æfinga mætast, ásamt teygjum og slökun. Heildræn hreyfing sem styrkir líkamann, eykur liðleika og gefur góða tilfinningu bæði í líkama og huga.
Bjargey er þaulreyndur þjálfari með áratuga reynslu. Hún er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands og með meistaragráðu í íþróttavísindum, Exercise Science. Hún hefur einnig lokið 500 klst. jógakennaranámi og hefur bætt við sig fjölbreyttri sérmenntun.
Fimmtudaginn 22. október kl. 16:30
📍 UMI Wellness Studio, Seltjarnarnesi
FRÍ skráning – takmarkað pláss! Skráning hér að neðan.
Ein skráning á mann. Hver þátttakandi skráir sig sérstaklega svo við höfum rétt nafn og netfang hjá öllum.
Vinsamlegast afboðaðu mætingu ef þú kemst ekki, svo annar geti nýtt plássið.
Þá hefst 3 vikna námskeið Styrkur og Mýkt þann 27. október, kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:30.
Tryggðu þér pláss í skemmtilegum hóp!