Barre og Pilates - unglingar með Svövu Marín
Barre og Pilates – unglingar x Kenzen
6 vikna fjölbreytt og eflandi námskeið fyrir unglinga þar sem unnið er með Barre, Pilates og styrktaræfingar í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.
Barre og Pilates eru fjölbreytt æfingakerfi sem leggja áherslu á styrk, liðleika, jafnvægi og góða líkamsbeitingu. Notast er við létt lóð, bolta og teygjur og tímarnir henta jafnt byrjendum sem þeim sem hafa stundað íþróttir eða dans áður.
Kennt er tvisvar í viku, 50 mínútur í senn, undir faglegri leiðsögn með áherslu á góða tækni og örugga hreyfingu.
Á unglingsárunum hætta margir í hefðbundnu tómstundastarfi og því viljum við skapa rými þar sem hreyfing snýst ekki um samanburð eða frammistöðu, heldur styrk, vellíðan, sjálfstraust og gleði í hreyfingu.
Þátttakendur fá litla stílabók sem unnið verður með í gegnum námskeiðið. Með einföldum verkefnum, umræðum og hugleiðingum verður meðal annars farið í sjálfstraust, hamingju, vellíðan, markmiðasetningu og eigin styrkleika. Við kennum stelpunum einnig að nýta öndun til að róa taugakerfið og efla sjálfsþekkingu og jákvæða sjálfsmynd.
Gjöf frá KENZEN fylgir með öllum skráningum.
6 vikna námskeið
Hefst 2. nóvember
Mánudagar og miðvikudagar kl. 15:30
50 mínútur í senn
📍 UMI Wellness Studio, Seltjarnarnesi
Um Svövu Marín
Svava Marín er dansari og barre-kennari og hlaut barre-kennararéttindi árið 2017. Hún hefur stundað barre í mörg ár og á að baki sér fjölbreyttan dansferil. Auk þess er Svava með BA-gráðu í dönsku, fjölmiðlafræði sem aukagrein og diplomu í digital marketing.
Hún byrjaði sjö ára gömul í jazzballett í Danmörku og stundaði síðar nám við Jazzballettskóla Báru á listdansbraut og Listdansskóla Íslands. Svava hefur einnig kennt hjá Tilveran Studio í Garðabæ, þar sem námskeið hennar nutu mikilla vinsælda og færri komust að en vildu.
Í kennslunni leggur hún áherslu á gleði, flæði, góða líkamsbeitingu og jákvætt og hvetjandi umhverfi þar sem allir geta notið sín.