SCULPT með Áslaugu Zoëga
SCULPT með Áslaugu Zoëga
SCULPT er nútímalegt Pilates þar sem styrkur, lenging og flæði mætast í markvissri hreyfingu. Æfingarnar byggja upp djúpan styrk, móta líkamann og efla líkamsvitund. Í tímunum mætast einbeiting, stjórn og sterk líkamstenging – og þessi djúsí tilfinning þegar þú finnur líkamann virkilega vinna.
Tímarnir henta vel fyrir þig sem vilt byggja upp styrk og líkamsvitund í fallegu flæði, með fjölbreyttum æfingum og góðri tónlist.
6 vikna námskeið
Hefst 5. október
Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:40
📍 UMI Wellness Studio, Seltjarnarnesi
Um Áslaugu
Áslaug Zoëga hefur stundað Pilates frá árinu 2017 og er bæði Pilates- og jógakennari. Hún lauk 200 klst. jógakennaranámi árið 2018 og Mat & Reformer Pilates kennaranámi hjá Breathe Education árið 2022. Hún hefur kennt bæði mat og reformer Pilates, meðal annars í Sydney, og bætti síðar við sig Barre Movement kennaranámi. Áslaug hefur kennt hjá meðal annars NúnaCo., Viðmót Studio, Yogalífi og Kramhúsinu og leggur áherslu á nákvæmni, flæði og sterka líkamsvitund í kennslunni.