Skilmálar

UMI ehf.
Kt. 430621-0170
Austurströnd 1, 170 Seltjarnarnes
Sími: 898 1915
Netfang: umi@umi.is

Almennt

Skilmálar þessir gilda um kaup á þjónustu og námskeiðum hjá UMI ehf. Með kaupum samþykkir viðskiptavinur skilmálana eins og þeir eru á kaupdegi.

Verð og greiðslur

Verð eru birt í íslenskum krónum. Greiðsla fer fram með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru í vefverslun UMI hverju sinni.

Skráning á námskeið

Við skráningu á námskeið hjá UMI kaupir þátttakandi og tryggir sér pláss á tilteknu námskeiði á tilteknu tímabili. Kaupin miðast því við pláss á námskeiðinu en ekki ákveðinn fjölda stakra tíma.

Ef þátttakandi missir úr tíma vegna veikinda, ferðalaga, vinnu, fjölskylduaðstæðna eða annarra persónulegra ástæðna er sá tími almennt ekki endurgreiddur og ekki er tryggt að hægt sé að bæta hann upp í öðrum hópi. Ef laust pláss er í sambærilegum tíma kann UMI að bjóða upp á slíka lausn, en það er háð framboði og er ekki hluti af kaupunum.

Opnir tímar og klippikort

Stakur opinn tími og 10 skipta klippikort gilda í tíma sem merktir eru „Opinn tími“ í stundaskrá UMI. Bóka þarf fyrirfram og bókun er háð lausum plássum.

Tilkynna verður forföll áður en tími hefst. No-show í opinn tíma er klippt af klippikorti.

10 skipta klippikort gildir í 6 mánuði frá kaupdegi og gildir ekki á lokuð námskeið. Um endurgreiðslu og rétt til að falla frá kaupum fer samkvæmt skilmálum þessum og lögbundnum réttindum neytenda.

Langvarandi veikindi eða meiðsli

Ef alvarleg eða langvarandi veikindi eða meiðsli koma upp er viðskiptavinum bent á að hafa samband við UMI eins fljótt og unnt er. Slík mál eru metin einstaklingsbundið og kann UMI að óska eftir viðeigandi staðfestingu. Eftir atvikum getur verið boðið upp á inneign, flutning á skráningu eða aðra sanngjarna lausn.

Breytingar og niðurfelling tíma

UMI áskilur sér rétt til eðlilegra breytinga á stundaskrá eða leiðbeinendum. Ef UMI fellir niður einstakan tíma verður leitast við að bjóða upp á uppbótartíma eða sambærilega lausn. Ef heilt námskeið er fellt niður eða verulegur hluti keyptrar þjónustu er ekki veittur er viðskiptavini boðin endurgreiðsla fyrir þann hluta þjónustunnar sem ekki var veittur eða önnur sambærileg lausn.

Réttur til að falla frá kaupum

Um fjarsölu og rétt neytenda til að falla frá samningi fer samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016. Í lögunum eru jafnframt undantekningar frá almennum 14 daga rétti, meðal annars vegna tiltekinnar tómstundaþjónustu sem veitt er á ákveðnum degi eða tilteknu tímabili. Réttur viðskiptavinar fer því eftir eðli þeirrar þjónustu sem keypt er hverju sinni.

Snyrtistofa og Noona

Bókanir í snyrtistofu sem framkvæmdar eru í gegnum Noona lúta jafnframt þeim bókunar- og afbókunarskilmálum sem birtast í Noona við bókun.

Heilsa og þátttaka

Þátttakendur bera ábyrgð á að meta eigið heilsufar og upplýsa leiðbeinanda um meiðsli, veikindi, meðgöngu eða aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á þátttöku. Kennsla og ráðgjöf hjá UMI kemur ekki í stað læknisfræðilegrar ráðgjafar.

Kvartanir og samskipti

Spurningar eða kvartanir vegna kaupa skulu sendar á umi@umi.is. UMI leitast við að leysa úr málum með sanngjörnum hætti og í samræmi við gildandi lög.

Breytingar á skilmálum

UMI getur uppfært skilmála þessa eftir þörfum. Sú útgáfa sem var í gildi þegar kaup fóru fram gildir um viðkomandi kaup.