Skip to product information
PILATES & GUSA · sunnudaginn 8. nóvember
9,900 kr
PILATES + GUSA
með Gullý & Maríönnu · 8. nóvember
Gefðu þér stund á sunnudag fyrir hreyfingu, hita, sjó og endurheimt. Við byrjum saman hjá UMI með 50 mínútna Pilates æfingu með Gullý.
Í boði verða ávextir og Happy Hydrate áður en við færum okkur yfir í Sækot.
Þar tekur Maríanna á móti okkur í seiðandi sauna-ritúal þar sem við leyfum líkamanum að hitna og svitna í þremur 15 mínútna lotum. Á milli lota kælum við okkur niður í sjónum/grasinu.
Dagskrá
12:30 – Húsið opnar hjá UMI
12:40 – 50 mín Pilates með Gullý
13:30 – Boðið verður upp á ávexti eftir Pilates-tímann og Happy Hydrate
14:00 – Mæting í Sækot. Sauna-ritúal með Maríönnu, 3 × 15 mín. lotur með kælingu á milli. Létt snarl eftir gusuna
15:30 – Viðburði lýkur
Verð: 9.900 kr.
Takmarkaður fjöldi plássa.