Styrkur og Mýkt með Bjargeyju - 26. nóvember
STYRKUR OG MÝKT með Bjargeyju Aðalsteinsdóttur
Kennt tvisvar í viku í 50 mínútur í senn. Fjölbreyttir tímar þar sem Pilates, styrktaræfingar með lóðum og mýkt barre-æfinga mætast, ásamt teygjum og slökun. Heildræn hreyfing sem eflir líkamann, bætir liðleika og nærir bæði líkama og huga.
Um Bjargeyju
Bjargey er þaulreyndur þjálfari með áratuga reynslu af hreyfingu og kennslu. Hún er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands og með meistaragráðu í íþróttavísindum, Exercise Science. Hún hefur einnig lokið 500 klst. jógakennaranámi og bætt við sig fjölbreyttri sérmenntun. Kennslan hennar sameinar styrk, mýkt og líkamsvitund á hlýlegan og markvissan hátt.
3 vikna námskeið
Hefst 27. nóvember og lýkur 15. desember
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 16:30
📍 UMI Wellness Studio, Seltjarnarnesi
Gefðu þér þennan tíma.
Um Bjargey
Bjargey kennir Styrk & mýkt hjá UMI, þar sem styrktarþjálfun, hreyfanleiki og mjúkar hreyfingar í fjölbreyttum og markvissum tímum.
Í kennslunni leggur hún áherslu á að byggja upp styrk og góða líkamsbeitingu samhliða auknum liðleika og hreyfigetu. Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt að aðlaga þær að ólíkri getu og reynslu.
Bjargey skapar hlýlegt og hvetjandi andrúmsloft þar sem markmiðið er að fá góða hreyfingu, styrkja líkamann og líða vel að tíma loknum.