Dekur fyrir taugakerfið | Vertu vel útbúin með boltasetti frá Bandvefslosun.is
Settið inniheldur:
1× Blöðrubolti (með röri til að blása upp):
- Notaður fyrir mjóbak, kvið og sem stuðningur undir höfuð og háls við notkun minni boltanna.
- Ekki setja meira en 70% loft – minni þrýstingur = meira næmi í vinnunni!
- Þægilegur undir hnakkann þegar unnið er með axlir.
2× Nuddboltar – minni gerðin (í neti):
- Gott grip og mjúk snerting.
- Mjúkir gúmmíboltar með góðu gripi sem henta vel fyrir iljar, kálfa, rassvöðva, brjóstbak, axlir og framhandleggi.
- Nuddboltarnir eru ekki harðir og gefa eftir í nuddinu þannig að þú átt auðveldara með að vinna í ró og róa niður taugakerfið.
- Hægt að nota saman eða staka – netið heldur þeim þétt saman.
2× Nuddboltar – stærri gerðin (í neti):
- Gott grip og mjúk snerting.
- Frábærir upp við vegg fyrir mjaðmir og upphandleggi eða á stól fyrir aftanverð læri.
- Nuddboltarnir eru ekki harðir og gefa því eftir í nuddinu þannig að þú átt auðveldara með að vinna í ró og róa niður taugakerfið.
- Hægt að nota saman eða staka – netið heldur þeim þétt saman.
1× Slitsterkur og fallegur Taupoki:
•Til að halda öllu saman á ferðinni – hvort sem er í tíma, vinnunna eða ferðalaginu.
Bandvefslosun – hvers vegna?
Bandvefslosun hjálpar þér við að:
•Auka liðleika
•Draga úr stoðkerfisverkjum
•Bæta hreyfifærni
•Draga úr streitu og róa taugakerfið
Við hvetjum alla til að eiga sitt eigið sett – bæði fyrir hreinlæti og heimaiðkun.
Takmarkað magn lánsbúnaðar í boði – tryggðu þér þitt eigið sett!
Geymsla og umhirða:
Ekki er gott að geyma boltana þar sem sólin nær að skína beint á þá, því þá geta þeir þornað.
Gott er að þvo þá með mildri sápu og skola með volgu vatni. Láttu boltana þorna vel áður en þeir eru settir í pokann.

